Helstu fréttir
-
Niðurskurður ríkisútgjalda
Fyrirhugaður niðurskurður ríkisútgjalda Vesturlanda, yfirskuldsettir ríkissjóðir, yfirskuldsett heimili og veikur einkageir atvinnulífsins mun hjálpast að að skapa kjörlendi fyrir alvarlega kreppu á Vestulöndum á næstu árum. Í því umhverfi eru tilraunir íslenskra stjórnvalda til að eyðileggja útflutningsgreinar þjóðarinnar brjálsemin ein.Skoða » -
Samdráttur að hefjast í bandarísku efnahagslífi
Að mati stærsta fjárfestingafyrirtæki heims á skuldabréfamarkaði er samdráttur í Bandarísku efnahagslífi ekki aðeins mögulegur heldur mjög líklegur. Ávöxtunarkröfur á bandarísk ríkisskuldabréf hafa ekki verið lægri í 60 ár og það bendir til samdráttar.Skoða » -
Samdráttur líklegur í Evrópu og Bandaríkjunum
Skoða »Hlutabréfamarkaðir hrundu um allan heim eftir að Morgan Stanley varaði við nýjum samdrætti í Bandaríkjunum og Evrópu. Bankinn gerir ráð fyrir minni hagvexti á heimsvísu og að einkum sé um að kenna mistökum stjórnmálamanna í Evrópu við stemma stigu við skuldakreppu evrusvæðisins.
-
Stefnir í samdrátt í Hong Kong
Skoða »Samdráttur er að hefjast í Hong Kong að mati sérfræðings sem Bloomberg fréttastofan leitaði til í dag. Hong Kong er útflutningsdrifið hagkerfi og er talið endurspegla alþjóðaviðskipti betur en nokkurt annað ríki. Alþjóðleg eftirspurn hefur minnkað til muna og framleiðsla sömuleiðis.
-
Ný fjármálakreppa
Aðgerðir stjórnvalda til að koma í veg fyrir nýja fjármálakreppu á Vesturlöndum eru fullkomlega óviðunandi. Ef stjórnvöld í Bandaríkjunum og Evrópu tekst ekki að koma sér saman um stóraukna peningaprentun er von á alvarlegri kreppu í mjög langan tíma. Ef þeim tekst það skapast hins vegar óðaverðbólga um langt árabil.Skoða » -
Fjármagnseigendur ausa uppsöfnuðu lausafé á hlutabréfamarkaði
Skoða »Ákvörðun seðlabankastjóra Bandaríkjanna um að halda stýrivöxtum við 0% í tvö ár í viðbót leiddi til þess að fjárfestingakostir fjármagnseigenda eru orðnir bágbornir í ljósi hækkandi verðbólgu, og leita því í meiri áhættu hlutabréfamarkaða í von um viðunandi ávöxtun.
-
Eina leiðin úr skuldakreppunni er verðbólgumyndun
Skoða »Í ljósi yfirskuldsettra ríkissjóða Vesturlanda, sögulegra aðhaldsaðgerða og versnandi efnahagshorfa er eina lausnin við skuldakreppunni aukin peningaprentun og verðbólgumyndun. Með hækkaðri verðbólgu lækka óverðtryggðar skuldir en einnig almenn lífsgæði.
Fréttir
Sífellt fleiri hagfræðingar vilja færa niður skuldir heimila
Sífellt fleiri málsmetandi hagfræðingar eru farnir að benda á nauðsyn þess að færa niður skuldir bandarískra heimila til að auka hagvöxt og koma í veg fyrir nýja fjármálakreppu. Stephen Roach bætist nú í þann virðulega hóp hagfræðinga og segir afskriftir heimila nauðsynlegar.
Samdráttur að hefjast í bandarísku efnahagslífi
Að mati stærsta fjárfestingafyrirtæki heims á skuldabréfamarkaði er samdráttur í Bandarísku efnahagslífi ekki aðeins mögulegur heldur mjög líklegur. Ávöxtunarkröfur á bandarísk ríkisskuldabréf hafa ekki verið lægri í 60 ár og það bendir til samdráttar.
Samdráttur líklegur í Evrópu og Bandaríkjunum
Hlutabréfamarkaðir hrundu um allan heim eftir að Morgan Stanley varaði við nýjum samdrætti í Bandaríkjunum og Evrópu. Bankinn gerir ráð fyrir minni hagvexti á heimsvísu og að einkum sé um að kenna mistökum stjórnmálamanna í Evrópu við stemma stigu við skuldakreppu evrusvæðisins.
Stefnir í samdrátt í Þýskalandi og Frakklandi
Hægst hefur verilega á útflutningsdrifnum hagkerfum og er það merki um að alþjóðaviðskipti eru tekin að kólna. Enginn hagvöxtur mælist í Frakklandi og mælist aðeins 0.1% í Þýskalandi á milli ársfjórðunga. Er þessi þróun í samræmi við samdrátt í hagkerfi Hong Kong sem er það hagkerfi sem berskjaldaðast er fyrir kólnun í alþjóðaviðskiptum.
Samdráttur mælist í Hong Kong
Samdráttur er að hefjast í Hong Kong að mati sérfræðings sem Bloomberg fréttastofan leitaði til í dag. Hong Kong er útflutningsdrifið hagkerfi og er talið endurspegla alþjóðaviðskipti betur en nokkurt annað ríki. Alþjóðleg eftirspurn hefur minnkað til muna og framleiðsla sömuleiðis.
Matvælaverð mun hækka enn frekar á þessu ári
Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir ráð fyrir auknum þrenginum á matvælamarkaði og hækkunum vegna uppskerubresta á hrísgrjónum. Stjórnvöld framleiðsluríkja eru farin að kaupa matvæli af bændum á hærra verði en fæst á heimsmarkaði til að stykja landbúnaðinn. Veldur það hækkunum á verði grunnfæðutegunda sem ekki er séð fyrir endan á.
Nýr samdráttur er óhjákvæmilegur
Paul Gambles segir í viðtali við CNBC fréttastofuna að samdráttur í bandarísku efnahagslífi sé óhjákvæmilegur, og í raun hafi þar verið samdráttur í 10 ár, en að hann hafi verið falinn með lántökum. Að hans mati gefur skuldabréfamarkaður betri vísbendingu um stöðu efnahagsmála en hlutabréfamarkaður, og skuldabréfamarkaður bendi til samdráttar.
Fjármagnseigendur ausa uppsöfnuðu lausafé á hlutabréfamarkaði
Útilokað er að rekja hækkanir á hlutabréfamörkuðum til banns við skortsölu í Evrópu eða aukinnar smásölu í júnímánuði í Bandaríkjunum því fjölmargar aðrar vísbendingar benda til samdráttar eða verulegrar kólnunar á vestrænum hagkerfum. Ákvörðun seðlabankastjóra Bandaríkjanna um áframhaldandi lága stýrivexti leiddi til þess að fjárfestingakostir fjármagnseigenda eru orðnir bágbornir í ljósi hækkandi verðbólgu, og leita því í meiri áhættu hlutabréfamarkaða í von um viðunandi ávöxtun.
Hlutabréfamarkaðir eru einstaklega rokgjarnir
Hlutabréfamarkaðir hækkuðu verulega í Bandaríkjunum í dag eftir mikið hrun daginn áður. Rokgirni á mörkuðum er rakin til spákaupmennsku vegna misvísandi fregna um stöðu efnahagsins í Bandaríkjunum. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum virðist ekki vera að aukast þótt flest allir hagvísar bendi til samdráttar í efnahagslífinu.
Sérfræðingar telja miklar líkur á annarri heimskreppu
Skelfilegar tölur berast af hlutabéfamörkuðum í dag eftir að efnahagshorfur Bandaríkjanna, Asíu og Evrópu versnuðu til muna. Hver hagvísirinn á fætur öðrum bendir til þess að alvarlegt samdráttarskeið sé í aðsigi að óbreyttu og er aukin harka hlaupin í alþjóðaviðskipti þar sem þjóðir keppast við að treysta samkeppnisstöðu sína.
Lækkandi kostnaður við frakstskipaflutninga er rakinn til dekkri efnahagshorfa
Kostnaður vegna ferjuflutninga til Bandaríkjanna frá Asíu hefur stórlækkað í skugga skuldakreppu og minnkandi eftirspurnar í smásölu. Innflutningur á vörum hefur minnkað og pantanir á vörum hafa fækkað verulega. Fraktskipafélög í Asíu sjá fram á hækkun flutningsgjalda vegna stórhækkaðs olíukostnaðar og erfiðari rekstursskilyrða. Erfiðleikar í rekstri fraktskipafélaga eru raktir til dekkri efnahagshorfa á Vesturlöndum.
Helmingslíkur eru á lækkuðu lánshæfi bandaríska ríkisins
Talið er helmingslíkur á að lánshæfismat Bandaríkjanna yrði lækkað þrátt fyrir að samkomilag takist á milli demókrata og repúblikana um hækkað skuldaþak ríkissjóðs. Lækkað lánshæfismat myndi leiða til hækkaðra vaxta og veikingu dollars, og myndu áhrifanna gæta um heim allan, ekki síst í nýmarkaðríkjum Asíu.
Greiðslufall Ítalíu mögulegt ef ávöxtunarkröfur hækka frekar
Ávöxtunarkröfur ítalskra skulda hafa hækkað gríðarlega og getur hindrað aðgengi Ítalíu að almennum skuldabréfamökruðum leitt til greiðslufalls ríkissjóðs að óbreyttu. Fjárfestar á markaði horfa til þess að ekki eru til nægilega stórir sjóðir til þrautavara ef Ítalía þarf að endurfjármagna sig utan almennra markaða.
Greiðslufall Bandaríkjanna öruggt þann 2. ágúst
Talið er of seint fyrir stjórnvöld í Bandaríkjunum til að koma í veg fyrir greiðslufall bandaríska ríkisins 2. ágúst n.k. Samingur um hækkað skuldaþak þurfti að liggja fyrir 22. júlí til að ný lög næðu fram að ganga fyrir 2. ágúst. Nú er aðeins spurning um hvernig greiðslufallinu verður háttað og hvaða afleiðing það mun hafa á fjármálakerfi Bandaríkjanna og heimsins alls. Lækkun á lánshæfismati Bandaríkjanna myndi hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar fyrir skuldastöðu þjóðarinnar.
Grikkland er gjaldþrota
Leiðtogar aðildarríkja evrusvæðinsins hafa náð samningum við einkareknar fjármálastofnanir um þáttöku þeirra í endurskipulagningu á skuldum Grikklands, Írlands og Portúgals. Sú neyðaraðstoð felur í sér afskriftir skulda handa Grikkjum og breytingu á lánskjörum skuldabréfa hjá löndunum þremur. Er talið að matsfyrirtækin líti á það sem skipulagt gjaldþrot Írlands og Portúgals, en hreint gjaldþrot Grikklands. Aðgerðirnar gætu haft mikil áhrif á aðgengi Ítalíu og Spánar að almennum skuldabréfamörkuðum.
Vídeopistlar
-
Sinclair: Ef gullverð fer yfir 1764 dali munu eiga sér stað alvarlegir hlutir um öll Vesturlönd
www.youtube.com -
Rosenberg: Erum stödd mitt í auga stormsins. Öngþveiti er framundan á mörkuðum
video.cnbc.com -
Blanchflower: Skuldakreppan mun að öllum líkindum breiðast út til Frakklands
bloom.bg -
Faber: Minnkandi vöxtur Kína getur valdið hruni víða um heim einkum hjá hrávöruframleiðendum
video.cnbc.com -
Hu: Skýr merki eru uppi að kínverska hagkerfið sé að kólna verulega
bloom.bg -
Blain: Skuldakreppan mun innan skammst breiðast til Þýskalands og Frakklands
bloom.bg -
Sinai: Lánshæfi Bandaríkjanna mun lækka með eða án greiðslufalls ríkissjóðs
www.bloomberg.com
Pistill
Niðurskurður ríkisútgjalda
Fyrirhugaður niðurskurður ríkisútgjalda Vesturlanda, yfirskuldsettir ríkissjóðir, yfirskuldsett heimili og veikur einkageiri mun skapa skapa kjörlendi fyrir alvarlega kreppu á Vestulöndum á næstu árum. Í því umhverfi eru tilraunir íslenskra stjórnvalda til að eyðileggja útflutningsgreinar þjóðarinnar brjálsemin ein.
Eldri pistlar
- Ný fjármálakreppa
- Eina leiðin úr skuldakreppunni er verðbólgumyndun
- Upphaf viðskiptahindrana í alþjóðaviðskiptum
- Útflutningsdrifin hagkerfi þurfa að breytast í grundvallar atriðum
- Fiat justitia, et pereat mundus
- Skuldakreppa Vesturlanda gæti leitt til verndarstefnu og viðskiptahafta
- Ár verðbólgunnar 2011
- Er annað hrun hlutabréfa í aðsigi?
- Hnattræn hlýnun er mesta ógnin við heimsefnahaginn
- Það er aðeins tímaspursmál!
- Lýðræðishallinn á viðskiptum við Kína
- Peningamál seðlabankans sorgleg lesning
- Jafnrétti á krepputímum
- Gjaldeyrisstríð
- Auðlindaþurrð og náttúruhamfarir bera með sér váleg teikn. Enn er þó von.
- Gegraptai gar, því það stendur skrifað
- Verðbólga - Verðhjöðnun
- Fjölmiðlafrumvarpið
- Mikilvægi einkaframtaksins og einkaneyslu
- Askja Pandóru og þingnefnd Atla Gíslasonar
Skuggsjáin
Fjármálakreppa steðjar að nýmarkaðsríkjum
Samkvæmt úttekt Bloomberg Buisnessweek steðjar fjármálakreppa að nýmakraðsríkjum. Matsfyritækið Fitch Rating reiknar með allt að 30% vanskilum allra kínverskra lána á næstu misserum. Reiknað er með að vöxtur nýmarkaðsríkja kunni að minnka um allt að 50% í ljósi minnkandi eftirspurnar frá Vesturlöndum, hækkandi verðbólgu og fækkandi erlendra fjárfestinga. Reiknað er með að miklu verðfalli á ál og koparverði þar sem Kína er stærsti kaupandi málma í heiminum.
Eldri skuggsjár
- Rannsókn sýnir að yfirskuldsetning ríkissjóða hamli hagvexti
- Kínverskur svartur svanur
- Marc Faber telur evrópsk og bandarísk hlutabréf vænlegri en hlutabréf nýmarkaðsríkja
- Stórhækkuð heimsverðbólga bitnar mest á vanþróuðum- og nýmarkaðsríkjum
- Líkur eru á fæðukreppu í skugga náttúruhamfara og minnkandi fæðubirgða
- Alvarleg kreppa hafin á bandarískum fasteignamarkaði
- Ísland er betur statt en Grikkland, Írland og Bretland
- Kínverska hagkerfið verður stærra en það bandaríska eftir 2 ár
- Japan í stríðsham
- Írland - Hvað er að frétta?














